Umsóknareyðublöð í alla styrki á vegum Impru má nálgast hér til hægri.
Innskráningar er krafist og veitir skráningin umsækjanda gagnvirkan aðgang að umsóknareyðublöðum.
Vinsamlega vistið eyðublöðin reglulega.
Athugið að mikið álag er á kerfinu við lok umsóknarfrests og
getur það valdið töfum við vinnslu umsókna. Við mælum því með að
umsóknir séu sendar inn sem fyrst.
Upplýsingar og aðstoð veitir Jóhanna Ingvarsdóttir í s: 522 9267.
Hverju umsóknareyðublaði er skipt í 4 skref:
Í hverju skrefi er mögulegt að vista eyðublaðið og nálgast það svo síðar í gegnum vefinn og halda áfram við útfyllingu þess. Einnig geta umsækjendur boðið öðrum að koma að vinnslu umsóknarinnar með því að senda á þá slóðina eða notendanafn og lykilorð s.s. ef fleiri en einn eru að sækja um sameiginlega eða ef umsækjandi vill fá aðstoð ráðgjafa við útfærslu verkefna.
Umsækjendur að styrkjasíðu Impru fá aðgang að læstu svæði. Þar eru birtar allar umsóknir og viðbótargögn sem umsækjandi sendir inn. Einnig birtast þar upplýsingar um stöðu umsóknarinnar hjá Impru, tölvupóstsamskipti við verkefnisstjóra og síðan svar við umsókninni sem sent er með tölvupósti. Í framhaldinu er hægt að nota þetta svæði til að halda utan um áframhaldandi samskipti vegna verkefnisins. Þar koma þá fram upplýsingar varðandi verkáætlanir, áfanga- og lokaskýrslur auk annars sem kemur að handleiðslu við vinnslu verkefnisins.
Vandamál koma upp við að fylla út umsóknir í Internet
Explorer vafranum, þ.e. umsóknin frýs. Við mælum með að
Firefox vafrinn sé notaður í staðinn.
Notandi hefur vistað umsókn og fengið hlekk sendan til sín í tölvupósti eða inn á sitt svæði. Þegar smellt er á hlekkinn í tölvupóstinum birtist ekki umsóknin. Ástæðan getur verið sú að sum tölvupóstforrit skipta hlekknum í tvennt. Það þarf því að afrita allan hlekkinn í vafrann og þá opnast umsóknareyðublaðið rétt.
Tölvupóstur skilar sér ekki til umsækjanda með umsókn eða notendanafni. Umsóknin er send á það netfang sem slegið er inn. Ef villa er í netfanginu eða vitlaust netfang slegið inn þá skilar pósturinn sér ekki. Sendið póst á Impru með upplýsingum um hvenær umsóknin var fyllt inn og um hvað var sótt svo hægt sé að endurheimta umsóknina.